Í þáttunum er leikin sígild tónlist úr ýmsum áttum. Tíndir eru saman fróðleiksmolar um tónlistina og höfunda hennar og skyggnst í söguna á bak við verkin.
…
continue reading

1
Tónlist eftir Edvard Grieg
50:44
50:44
Later Afspelen
Later Afspelen
Lijsten
Vind ik leuk
Leuk
50:44Í þættinum verður leikin tónlist eftir Edvard Grieg. Meðal annars verða fluttir kaflar úr sellósónötu Griegs og svítunni "Frá tíma Holbergs". Þá verða fluttir Sex söngvar ópus 48 sem Grieg samdi við þýsk ljóð á árunum 1884-1889, en meðal þeirra er "Ein Traum" (Draumur), eitt frægasta sönglag Griegs. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir,…
…
continue reading
Í þættinum verður fjallað um ítalska tónskáldið Alessandro Stradella sem uppi var á 17. öld. Fluttar verða tríósónata í d-moll og mótettan "Convocamini, congregamini" eftir Stradella. Einnig verður flutt kirkjuarían "Pietà, signore" sem hefur verið eignuð Stradella, en nú er talið öruggt að hún sé ekki eftir hann heldur samin á 19. öld. Þá verður f…
…
continue reading
Í þessari viku fær Grænland sérstaka athygli á Rás 1 og flutt verður grænlensk tónlist í þættinum "Á tónsviðinu". Þar er af ýmsu að taka og má þar til dæmis nefna trommudans, kórlög eftir grænlensku tónskáldin Jonathan Bertelsen, Peter Olsen og Henrik Lund, og tónlist sem hinn þekkti söngvari Rasmus Lyberth hefur samið. Einnig verður flutt lag sem …
…
continue reading

1
Tónlist við leikrit Sheridans
50:53
50:53
Later Afspelen
Later Afspelen
Lijsten
Vind ik leuk
Leuk
50:53Á Óperukvöldi útvarpsins fim. 6. mars verður flutt óperan „Gagnrýnandinn“ eftir Charles Villiers Stanford, byggð á leikriti eftir 18. aldar rithöfundinn Richard Brinsley Sheridan. Í tilefni af því verður þátturinn „Á tónsviðinu“ sama dag einnig helgaður tónlist við leikrit Sheridans. Sheridan fæddist 1751 og dó 1816. Hann þykir vera eitt merkasta l…
…
continue reading
Ævisagnaritarar frægra tónskálda hafa oft mikinn áhuga á ástamálum þeirra, en í tilfelli Franz Schuberts lenda þeir í vandræðum. Schubert giftist aldrei, ekki hefur varðveist ástarbréf frá honum til nokkurrar konu né öruggar heimildir um nokkurt ástarævintýri. Þó eru tvær konur sem talið er að Schubert hafi elskað, Therese Grob og Carolina Esterhaz…
…
continue reading
Helgina 22.- 23. febrúar stendur Tónlistardeild Listaháskóla Íslands fyrir flutningi á elstu óperu eftir konu sem varðveist hefur, en það er óperan „La liberazione di Ruggiero dall´isola di Alcina“ (Björgun Ruggieros af eyju Alcinu) sem Francesca Caccini samdi árið 1625. Í tilefni af þessu verður þátturinn "Á tónsviðinu" 20. febrúar helgaður óperum…
…
continue reading
Á þessu ári eru liðin 100 ár frá því að skáldsagan "The Great Gatsby" - "Gatsby hinn mikli" - eftir F. Scott Fitzgerald kom út í Bandaríkjunum árið 1925. Þetta er ein frægasta skáldsaga 20. aldar og þykir lýsa sérlega vel andblæ áranna upp úr 1920. Sagan fjallar um Jay Gatsby, dularfullan auðkýfing sem er alltaf að halda stórveislur. Það er ungur n…
…
continue reading

1
Goldberg - tilbrigði og Grammy verðlaun
50:05
50:05
Later Afspelen
Later Afspelen
Lijsten
Vind ik leuk
Leuk
50:05Fyrir skömmu fékk Víkingur Heiðar Ólafsson Grammy-verðlaun fyrir geislaplötu sína með Goldberg-tilbrigðunum eftir Johann Sebastian Bach. Hinn klassíski geiri Grammy-verðlaunanna skiptist í 8 flokka og verðlaun Víkings Heiðars voru í flokknum "Besti einleikarinn". Í þættinum "Á tónsviðinu" verða leikin nokkur af Goldberg-tilbrigðunum af geislaplötu …
…
continue reading
Drottningin af Saba er persóna sem sagt er frá í Fyrri konungabók Biblíunnar. Hún er rík og voldug drottning sem kemur að heimsækja Salómon konung og hrífst af speki hans. Í þættinum "Á tónsviðinu" 31. janúar verða flutt atriði úr tónverkum sem snúast að einhverju eða öllu leyti um drottningunni af Saba. Þar má nefna óratóríuna "Salómon" eftir Geor…
…
continue reading
Skömmu fyrir jól var Notre Dame-dómkirkjan í París opnuð að nýju eftir viðgerðir sem staðið hafa yfir frá því að kviknaði í kirkjunni árið 2019. Í tilefni af þessu verður þátturinn "Á tónsviðinu" tileinkaður tónlist sem tengist Notre Dame. Þar má nefna söngverk eftir Leónínus, eitt helsta tónskáld Notre Dame-skólans á 12. öld, orgelverk eftir Louis…
…
continue reading
Tónskáldið Wolfgang Amadeus Mozart fæddist árið 1756. Hann var því uppi á tíma Upplýsingarinnar svokölluðu, en hún fólst í breyttum viðhorfum sem margir heimspekingar, rithöfundar og stjórnmálamenn boðuðu á 18. öld. Þekking og vísindi áttu að koma í staðinn fyrir hjátrú eða trúarkreddur, miskunnsemi og mannúð átti að koma í stað grimmilegra refsing…
…
continue reading
Í þættinum verður fjallað um tvö tónverk sem byggð eru á sögunni „Risinn eigingjarni" (The Selfish Giant) eftir Oscar Wilde. Sagan kom út í bók árið 1888 og fjallar um risa sem á fallegan blómagarð. Hann vill ekki lofa börnum að leika sér í honum og byggir múrvegg í kringum garðinn. En þegar börnin hætta að koma í garðinn vill vorið ekki koma þanga…
…
continue reading